þriðjudagur, janúar 20, 2004
Það er alveg merkilegt hvernig maður getur stanslaust verið að velta sér uppúr því hvað maður eigi að gera eða ekki gera... Maður er stanslaust að upplifa hvernig allt gæti verið en ekki endilega eins og það er, Lifir í draumi um eitthvað annað, eitthvað skemmtilegra, eitthvað sem kemur manni stanslaust alltaf á óvart, hvernig væri líf með frumbyggjum, maður gæti dansað, sungið, hoppað og trommað í skrítnum búningum fram eftir nóttu, lifað á grilluðum bönunum og upplifað endalausa stemmningu við ánna og varðeldinn og sofnað út frá sínum eigin hlátri en það hræðilegasta við svona lífsreynslu eða ölluheldur lífsmáta er það að þetta hættir einn daginn að vera skemmtinlegt og frumstætt og verður á endanum eðlilegt og dansinn við eldinn og ánna hættir að veita manni lífsgleðina sem hann gerði, Hvað gerir maður ??????? Er þá tími til að pakka saman og flytja til dæmis til Tibet og upplifa allt nýtt ? munkastemningu þar til að maður fær leið ? Þá pakka saman aftur og leita eitthvert annað... Hvenær verður maður sáttur við einfaldleikann og tilbreytingaleysið og nær sér niður á jörðina, á maður að þurfa að sætta sig við það. Mér sýnist mjög erfitt að vera alltaf að leitast við að gera umhverfið skemmtilegt og ófyrirsjáanlegt... Það er í alvörunni mjög óþolandi að það skuli ekki vera gaman eða meira ævintýralegt þar sem allt getur gerst að t.d. vaska upp og pissa. kannski að ég sendi þetta líka á Dr.phil.com. Er ég ein í tilvistarkreppu?? Ég ætla allavega í Jóga og athuga hvort sál minni takist bara hreinlega jafnvel að koma mér á óvart með skyndi öndun og trú líkamsstellingunni - vonandi ;) Annars hef ég engu yfir að kvarta Jú reyndar sakna Erlu minnar!!! Elska ykkur..
miðvikudagur, janúar 07, 2004
Með þessu skeyti hér sýnist mér á öllu að ég sé búin að blogga þrisvar sinnum á árinu, merkilegt nik!!
Það var einusinni kona sem vissi ekki hvað sneri upp og hvað væri á ská svo hún leitaði læknis en hún dó á leiðinni heim. Þetta er dæmi um stutta sögu með snöggum endi.
En ég er búin að vera að vellta fyrir mér afhverju fólk er eins og það er en ég kemst ekki að neinni ásættanlegri niðurstöðu, afhverju ert þú eins og þú ert?
Með þessu hér skeiti er ég búin að blogga tvisvar á þessu ári sem er ótrúleg framför og mun blogga aftur um leið og eitthvað gerist í lífinu mínu (gæti þ.a.l. verið töluvert langt þangað til)
Bara svona að halda þessu bloggi virku!!! Þrátt fyrir að allir séu væntanlega löngu hættir að nenna að kíkja á síðunna langar mig bara að óska öllum gleðilegs nýs árs og til hamingju með enn eitt misheppnaða ÁRAMÓTASKAUPIÐ!! Bless..
þriðjudagur, september 09, 2003
Vá þó að það sé endalaust síðan ég bloggaði síðast... Það er ekki eins og það sé sjálfsagður hlutur hjá öllum að hafa aðgang að svona tölvum stanslaust... En allavega þá er ég enn lifandi, byrjaði meirasegja nýjan lífstíl í gær..ég keypti mér semsagt lýsisflösku og var að byrja að innbyrða þennan undra vökva sem á víst að leysa öll vandamál,græða líkamleg og andleg særindi og meira til, sjáum hvernig fer vonandi að mar hrökkvi hreinlega ekki uppaf af ofheilbrigðleika... Ég heyrði frábært orð áðan frá Öddu Mekkín vínkonu hún spurði hvort ég væri ekki enn búin að umpotta... Semsagt skipta um blómapott á kærkomnu plöntunni sem ég á ásamt Erlu. Hvet fólk til að nota orðið, fallegt já og hljómar nokkuð skemmtilega. En burtséð frá því þá hef ég lítið að segja...
fann hjá mér gamalt ljóð sem ég botna ekki alveg sjálf en vill kasta því út og sjá hvort einhver er tilbúin að "túlka" það fyrir mig... vegleg verðlaun í boði..
Siðmall
Svefn orkunnar
brýtur leið til löngunnar
Viðfangsefni eilífðarinnar
lítur helbláum augum á botninn
Aldurskipt æxlunarstig
útskúfaðra menningarmiðlara
Meginbuxur fátæktar
vesæld þrjóskunnar
aldanna á milli
Þrekvaxinn sannleikurinn
hnegist við mælandann
Aumkast þá heyrandinn
endalausra lygana vegna
fyndið að þið gáfuð ykkur tíma til að lesa ... Takk bæ..
sunnudagur, apríl 27, 2003
Hæ öll fögru fljóð er getin voru við hórdóm
gaman að þið syndgið og stráið satanns böli yfir nærliggjandi
aðstandendur ykkar en ekki örvænta ljósið mun ná til ykkar allra
ef þið yðrist!! Seinna mun svo heimurinn syngja ykkur í svefn þar til þið svífið brosandi
yfir í annað land, land sem er sérstaklega útbúið og með einlægni hannað af ykkur
sjálfum þar sem allt það sem býr í ykkar fortíð, nútíð og hugsanlegri framtíð
afmyndast og aðlagast að ykkar innstu þrám, þar er allt það versta samofið öllu því besta
og köllum við það ýmist martröð eða draum.
Eina nótt dreymdi mig draum sem ég reyndi að útskýra fyrir sjálfri mér í ljóði:
Dauðadæmdur
Sem og aldrei
aftur fyrr
skemur ella tekur
framar fremur
endra nær
mun hann finnast sekur
Fyrr en síðar
fjarar út
lífsþróttur og þroski
lítilsháttar líkaminn
legst undir í frosti
saman komin
alheimsins
þráhyggja og þorsti...
mánudagur, apríl 14, 2003
Hei ég er flutt út úr íbúðinni!! Ég keypti mér litabók og er búin að lita
nokkrar myndir. Flytjiði út og kaupiði ykkur litabók, í alvöru
ég er samt ömurleg að lita!!
Ef einhver ríkisstarfsmaður sæi þessar myndir mínar þá yrðu mér
örugglega boðnar örorkubætur því ekki einu sinni útlimalaust
ungabarn næði að lita svona mikið út fyrir!! En ég er samt sem áður að
æfa mig og ætla ekki að gefast upp.
Ég gerði undraverðar hlut síðastliðið föstudagskvöld, ég endurtek Föstudagskvöld.
Ég fór á samkomu hjá KROSSINUM alveg ótrúlegur anskoti!!! Ég var reyndar með
stelpu sem ég er með í liðveislu og hún neiddi mig til að fara. En þetta voru rúmlega 3
tímar af hlaupum, hoppum ,predikunum og einhverju sem kallast að ég held að fara undir andann
Undraverður djöfull þetta að fara undir andan, predikarinn sem var amrískur heldur í ennið
á manneskju, hlær og öskrar tvær trúarsystur hans fara með bænir á undraverðu túngumáli svo er viðkomanda
hrint í gólfið þar sem hann liggur og skelfur í dágóðastund. Ég verð að segja að ef þetta hjálpar
fólki að komast yfir erfiðleika þá er það frábært en ég var hálf hrædd... Ég var líka eina
í húsinu sem var ekki frelsuð svo mér leið eins og ég væri satann...
Verð að fara í vinnuna... love jú gæs!!
mánudagur, mars 24, 2003
Vá ég er stanslaust að blogga mar... hei tið fimm sem kíkið hingað sorrý en nú ætla ég að fara að skrifa e-ð. Hvað heitir aftur vinkona mín úr Kef.. tussa nei, drulla nei, kunta nei kúkaklepraskán nei, já Erla hún er í raun mamma Andreu,Ingu,Lórý,Hjördísar og Sunnevu. ha svona er þetta skrítið maður.... En svona eftir að ég byrjaði að vinna í opperklass sjoppunni þarna á lækjartorgi hefur mart gerst sem hefur haft áhrif á geðheilsuna mína, í dag kom gamall róni með lekandi hor og rétti mér klink sem var horblautt og ég kúaðist mikið.. Svo er ég búin að fá tvö heimboð sem gæti hugsanlega verið fallegt ef annar hefði ekki verið 78 og hinn 82ára, annar gaf mér númerið sitt, er þetta normalt.. Ég er stundum beðin um að hringja á lögguna til að sækja menn sem vilja láta stinga sér inn svo þeir þurfi ekki að gista úti, í vinnunni í gær var ekkert að gera svo ég samdi ljóð um einn þeirra...
Maður á Lækjatorgi
Forfallinn neitandi
Freistar gæfunnar
Daðrar við dauðann
Nærist á böli
Særist sjaldan
nema þá næsta dag
Framtíðin farin
Skammtíðin liðin
Öll árin verða að einu
ekkert breytir hann neinu
féll af brautinni beinu.
Er þetta lífstíll,
er þetta leti.
Fæddist hann á röngum fleti
Var hann fordæmdur bölsins meti?
Sá hann þá
það sem barn þarf ekki að sjá
Voru fyriryndirnar forfallnar þá?
Bara ef hann hefði gert sín egin spor
í stað þess að feta í þeirra slor.
Þá sæti hann kannski ekki hér
grátbyðjandi og röflandi í mér
Hringdu á lögguna fljótt
mig vantar svo samastað í nótt...
laugardagur, mars 08, 2003
Kúkafiskabrundstungugröftsgeirvörtumergspabbadelamömmu- loðnukunturassaklepramaðkainngrónusírusveppablásíruholdsveikis-
jólasveinavörturassmakauppáhaldsömmuafasubbukynlífsspólu-
kennarakúkaandlitsmakaungbarnaklamedíusárasóttadvergsbrjóstasnípsbólu-
kynfæravörtumelludólgsfeitafrændatussusafasleikisvitahárahorgallsmyglu-
útlitsskánarfretsandfílusaurúrgangskindahænuugluriðilsnaflakusksúrganshóru-
drullumysuhrútspungageitarsæðisveiran þín!! Þetta er orð dagsins sem ég hvet alla sem verða stundum fyrir aðkasti leiðinlegra samborgara til að læra utanað og nota óspart...


